Beint á leiðarkerfi vefsins

15.5.2012

Hjálpin í CABAS virkar ekki

Ágætu CABAS notendur:

Fram hefur komið bilun sem tengist "Hjálpinni" í CABAS og er hún ekki aðgengileg sem stendur, tækniaðilar CAB vinna að lagfæringu en óvíst er hvenær henni verður lokið, (gæti tekið nokkra daga) við munum upplýsa ykkur um leið og við höfum frekari upplýsingar.

Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þetta kann að valda notendum, en ef ykkur vantar aðstoð vegna þessa eða leiðbeiningar getið þið sent okkur póst á cabas@idan.is eða haft samband í síma 618 3200. 

4.5.2012

CABAS uppfærsla

Vegna uppfærslu og breytinga í CABAS kerfinu verður CABAS ekki aðgengilegur laugardaginn 12. maí næstkomandi.

4.4.2012

Sameiginlegur fundur allra CABAS notenda

Ágætu CABAS notendur:

Sameiginlegur fundur allra CABAS notenda verður haldinn laugardaginn 5. maí í Borgarholtsskóla.

Bílgreinasvið IÐUNNAR í samstarfi við ABÍ boðar til fundar um stöðu og framtíð CABAS-tjónamatskerfisins á Íslandi.
Um er að ræða sameiginlegan fund þeirra aðila, starfsmanna bílgreinarinnar og bifreiðatryggingafélaga, sem vinna með CABAS-tjónamatskerfið.
Ætlunin er að ræða á fundinum í stuttum framsöguerindum stöðu CABAS-kerfisins í dag, nýjungar sem eru að verða á því og huga að framtíðarskipan þess.
Er síðan gert ráð fyrir að fundarmenn taki almennt þátt í umræðum í vinnuhópum sem skili niðurstöðum og að út úr fundinum fáist niðurstöður um á hvern hátt þeir aðilar sem nýta kerfið sjái það fyrir sér til framtíðar.
Fundartíminn er laugardagurinn 5. maí n.k. og hefst fundur kl. 9:00. Er gert ráð fyrir fundarlokum um eða fyrir kl. 16:00.

Fundarstaður er áætlaður í Reykjavík og verður kynntur frekar á næstunni ásamt nánari dagskrá fundarins þar sem jafnframt verður gert ráð fyrir að væntanlegir þátttakendur skrái sína þátttöku.

MUNUM AÐ TAKA 5.MAÍ FRÁ FYRIR CABAS FUND.


Nýskráning viðgerðaraðila
Eyðublað fyrir Cabas-notendur

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Mynd