Beint á leiðarkerfi vefsins

10.11.2010

Könnun á rekstrarkostnaði CABAS verkstæða

Ágætu CABAS notendur

Eins og ykkur er kunnugt um þá var unnið á vegum BGS að könnun á kostnaðarliðum í rekstri CABAS verkstæða til að freista þess að finna samsetningu á hugsanlegri CABAS vísitölu sem mögulega mætti styðjast við til reglulegra verðbreytinga þetta hefur verið unnið af Rannsóknarsetri verslunarinnar á Bifröst og undir eftirliti CABAS á Íslandi.

Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar fyrir notkunarnefndum BGS og tryggingarfélaganna ásamt því að almenn kynning fyrir CABAS notendur var haldin var fyrir skömmu.

Við  fengum miklar og mjög gagnlegar upplýsingar sem við höfum unnið úr en niðurstöður þessarar vinnu viljum við kynna fyrir CABAS notendum á notendavef CABAS.

8.9.2010

Námsvísir haustannar er kominn út

Námsvísir h2010 2Fjöldi spennandi námskeiða er í boði hjá IÐUNNI á haustönninni. Við hvetjum alla til að skoða vel úrvalið, jafnt fagtengdu námskeiðin sem og stjórnunar- og tölvunámskeiðin. Námsvísinum er dreift til allra félagsmanna okkar sem eiga von á honum í dag eða næstu daga. Einnig er hægt að nálgast námsvísinn hér.

 

Við hlökkum til að starfa með ykkur í vetur og hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur í síma 590-6400 ef frekari upplýsinga er þörf.

 

Bestu kveðjur,

Starfsfólk IÐUNNAR fæðsluseturs 

 

7.9.2010

Uppfærsla í CABAS

Ágætu CABAS notendur:

CABAS verður uppfærður á morgun 08.09.2010 kl 17 vegna verð og tegundarbreytinga, CABAS verður ekki aðgengilegur í einhverja stund á meðan uppfærslan er gerð.

Ýmsar breytingar og lagfæringar verða gerðar á kerfinu í þessari uppfærslu og er hægt að nálgast þær á notendavef cabas.is eða þegar þær hafa birst í cabas hjálpinni.

CABAS teymið

30.8.2010

CABAS næstu daga

Ágætu CABAS notendur:

Nokkur atriði varðandi CABAS kerfið næstu daga. 

1.  Uppfærsla verður í CABAS kerfinu 31.08.2010 kl 17 og verður kerfið EKKI aðgengilegt í einhverja stund meðan uppfærslan á sér stað, CABAS verður aftur tilbúið til notkunar 1. september 05:00.

2.   Vegna breytinga á valdsviði „notanda" / kerfisstjóra í CABAS er ekki ráðlegt að skrá inn nýja notendur í CABAS frá klukkan 10:00 þann 3. september, til klukkan 06.00 þann 7. september,

Ef nýr notandi er skráður inn á ofangreindu tímabili þá eyðist hann úr kerfinu 7. september.


3.   Þann 6. september kl 17:00 verður CABAS lokað vegna innsetningar nýrrar útgáfu/uppfærslu.
CABAS verður aftur tilbúið til notkunar 7. september 05:00.

Frekari upplýsingar um uppfærslurnar er að finna í dag á notendavef http://www.cabas.is/  en einnig munu þær birtast á hjálparvef CABAS eftir uppfærslunar.  

Munum að slökkva alltaf á CABAS kerfinu að loknum vinnudegi til að forðast hugsanlegar „bilanir".

CABAS teymið

14.8.2010

Fyrirhugaðar breytingar www.cabas.is

Loksins eru fyrirhugaðar breytingar vefnum www.cabas.is og mun hann nýtast enn frekar til almennrar þjónustu auk þess sem upplýsingaveita fyrir tjónþola og notendur CABAS tjónamatskerfissins verður enn öflugri. 

Til að ná þessu fram er talað um mánaðarlegt gjald fyrir aðgang að notendavef  http://www.cabas.is/ enda verði þar ítarlegar og faglegri upplýsingar fyrir notendur CABAS kerfissins en öllu jafna verði sendar í fréttabréfi ásamt ítarlegri aðstoð í gegnum skjáhjálp og síma, einnig verði þar spjallvefur þar sem aðilar geta skipst á skoðunum og myndað spjallþræði um sín málefni. Gert ráð fyrir varahlutavef þar sem aðilar geta miðlað varahlutum, notuðum eða nýjum og að skráning viðgerðaraðila á vefinn einnig með random auglýsingum.

4.8.2010

Námskeið IÐUNNAR á haustönn 2010

Skráning er hafin á námskeið IÐUNNAR á haustönn 2010. Til vinstri á síðunni undir flipanum Námskeið er birt yfirlit yfir námsframboðið og innritunarform fyrir einstök námskeið. Námskeiðin eru að venju mjög fjölbreytt og hafa að markmiði að auka þekkingu, leikni og hæfni fagfólks í iðnaði.  

30.7.2010

Tilkynning til CABAS notenda

Ágætu CABAS notendur:

Að gefnu tilefni viljum við minna CABAS notendur á að slökkva á CABAS að loknum vinnudegi.

Er talið rétt að minna notendur á þetta þar sem í einhverjum tilfellum má rekja "bilanir" í CABAS kerfinu hjá nokkrum notendum sem ekki slökkva á kerfinu að loknum vinnudegi.

Ástæður þessara "bilana" hafa verið ýmsar en rétt er að benda á það að uppfærslur í miðlægum kerfum (CABAS, vírusvarnir ofl) eiga sér oft stað þegar lítið álag er á þeim og því nauðsynlegt að slökkva að loknum vinnudegi.

CABAS-teymið

1.4.2010

BGS gæðastaðall

Tilkynning til verkstæða sem eru með eldri útgáfu Gæðastaðals BGS: Bílgreinasvið IÐUNNAR hefur tekið að sér að leiða uppfærslu / eftirlit eldri útgáfu BGS staðals, þar sem þessi vinna hefur tekið lengri tíma en ráðgert var höfum við í samráði við US. fengið frest sem tilkynntur var fyrir nokkru síðan vegna umsóknar um uppfærslu eldri útgáfu lengdan til 1. maí. 

Við munum strax eftir páskana senda frekari upplýsingar um Gæðastaðalinn, námskeið um burðarvirki og fleira til ykkar.

4.3.2010

Kynning

Fundur um Gæðavottun BGS  og  þá sérstaklega um sérkröfur til réttinga og málningarverkstæða var haldinn að Gylfaflöt 5. mars mjög góð þáttaka var á fundinum en milli 60 og 70 aðilar sóttu hann.

Nánar verður greint frá fundinum á notendasíðu cabas.is á næstu dögum. 

26.1.2010

Ferð til CABAS nóvember 2009

Eins og samningur milli ABÍ og Consulting kveður á um var farið til Svíþjóðar og fundað um notkun og framtíð Cabas tjónamatskerfið á Íslandi dagana 16. til 20.11.09.

Einnig voru fulltrúar IÐUNNAR og Bílgreinasambandsins með í ferðinni samkvæmt samkomulagi þar um við ABÍ.

Frekari upplýsingar á notendavef cabas.is.

18.1.2010

ÖKURITAR

Nánari lýsing:   Þekking Þátttakenda afla sér þekkingu á uppbyggingu og virkni ökuritakerfa og gera þá hæfa til ísetningar og kvörðunar á ökuritum Sjá www.bilgrein.is

 

15.1.2010

Yfirfærsla CABAS skýrslu

Notendur Stólpa og GARRA bókhaldsforrita snúi sér til þjónustuaðila til að lagfæra vsk í yfirfærslu á CABAS skýrslu til bókhaldsforrits.

7.1.2010

Námsvísir vorannar 2010 er kominn út

Forsíða námsvísis 2010Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.

 

Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.

 

Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.

 

Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs

5.1.2010

Ágreiningsnefnd:

Gert er ráð fyrir að skoðanir sem stofnaðar eru eftir 31.12.2009 taki mið af niðurstöðu fundar ágreiningsnefndar ABÍ / BGS í des 2009.

Nýskráning viðgerðaraðila
Eyðublað fyrir Cabas-notendur

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Mynd