14.9.2011
Breytingar ķ CABAS september 2011
Įgætu CABAS notendur:
Upplýsingar um nýjar tegundir og gerðir sem bæst hafa við í CABAS ásamt nýjum varahlutaverðum og ýmsum breytingum á CABAS kerfinu sem gerðar verða 24. september hafa verið birtar á notendavef CABAS.
CABAS-teymið.
26.4.2011
Upplżsinga og fręšsluerindi bķlgreina
Mikil breyting og framþróun á sér stað um þessar mundir í bílgreininni sem ekki verður hjá komist að taka þátt í en um nokkurt skeið hefur legið fyrir að boða þyrfti til kynningar og fræðslu um málefnið fyrir fagaðila.
Með þessu fréttabréfi viljum við kynna fyrir öllum sem málið varðar að fyrirhugað er að halda ítarlegar og fjölbreyttar kynningar um málefnið ásamt námskeiðum dagana 19. til 22. maí og má þar nefna nýjungar varðandi rafbílavæðingu, metanbíla og aðra nýja orkugjafa, ásamt nýjungum í suðutækni, rafmagni bifreiða, airbag ásamt ýmsum upprifjunarnámskeiðum meðal annars tengdum hjólastöðu og burðarviki svo og CABAS tjónamatskerfi.
Stefnt er á að halda þessar kynningar og fræðslu í tengslum við bílasýningu sem haldin verður í Fífunni Kópavogi dagana 21. og 22. maí en frekari upplýsingar um efni og dagskrá verða sendar til ykkar á næstunni, rétt er fyrir aðila að taka þessa daga frá og taka virkan þátt í dagskránni, þeir sem eru félagar FIT/IÐUNNAR og eiga um langan veg eiga að sækja á námskeið "ráðstefnunnar" er bent á að hægt er að sækja um ferðastyrki til IÐUNNAR fræðsluseturs.
Fagaðilar bílgreina fjölmennum og tökum virkan þátt í fyrirlestrum og námskeiðum á "ráðstefnunni" ásamt því að skoða bílasýninguna í Fífunni. "allt í einni ferð".
T.S.B. - tími skýrra breytinga.
14.1.2011
Sżndarveruleiki ķ sušu
Į þessu ári mun málm- og véltæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs stökkva langt inní framtíðina og hefja suðukennslu í sýndarveruleika.
Búnaðurinn verður bæði notaður til kennslu byrjenda og þeirra sem þurfa þjálfun til þess að bæta sig og sitt handverk. Segja má að þjálfunin byggi á fimm þáttum þ.e. færsluhraða, nálægð suðubyssunnar, halla suðubyssunnar, einkunnargjöf og hermun með mismunandi stillingum eins og breytingum á straum.
Žá er einnig um það að ræða að ekki er hægt að komast áfram í þjálfuninni fyrr en ákveðni leikni hefur verið náð. T.d. 85% leikni í færsluhraða, þá er hægt að halda áfram yfir í nálægð suðubyssunnar og svo koll af kolli. Gefin eru stig fyrir hverja umferð og afrekaskrá allra nemenda. Þannig geta nemendur og kennarar keppt í suðu sín á milli.
Hægt er síðan að skoða í upptöku hvað gert var rangt og lagfæra það í næstu umferð.
Aðgerðum er stjórnað í gegnum 22“ snerti skjá, neminn sér umhverfið í gegnum sérstök þrívíddar gleraugu sem eru í suðuhjálminum.
Búnaðurinn sem MVS IÐUNNAR fræðslusetur hefur ákveðið að nota í byrjun er frá FRONIUS í Austurríki. En FRONIUS er eitt af leiðandi fyrirtækjunum í suðumálum á heimsvísu.
Sýndarveruleikinn gefur ýmsa möguleika í kennslunni sem ekki voru áður. Það er t.d. hægt að fara með þjálfunina inní venjulega kennslustofu. Þá gefur búnaðurinn einnig möguleika á kynningu í suðu fyrir t.d. grunnskóla. Sparnaður við þjálfun suðumanns lækkar um 25%. Mengun snar minnkar þar sem engin ljósbogi og / eða gös myndast.

Leit
Mynd