Að lenda í tjóni
Nokkur atriði sem gæta þarf að ef lent er í tjóni
-
Fylla skal út tjónstilkynningu eins vel og hægt er með mótaðila, strax á staðnum ef þess er kostur, báðir aðilar kvitta undir. ( ath framhliðar tjónstilkynninga þurfa að vera eins hjá tjónsaðilum, bakhliðar tjónstilkynninga fylla síðan hver aðili fyrir sig.)
-
Hver aðili skilar eintaki af tjónstilkynningu sem fyrst til síns tryggingarfélags.
-
Ef lögreglan kom á vettvang sendir hún skýrslu sína beint til viðkomandi félaga.
-
Hægt er að láta meta tjón á ökutækjum á Cabas verkstæði sem hefur samning við tryggingarfélag tjónvalds (sjá lista um Cabas verkstæði) . Það verkstæði sem valið er kemur upplýsingum um tjónið til viðkomandi tryggingarfélags og aðstoðar tjónþola við næstu skref, ef td þarf að útvega bílaleigubíl á meðan viðgerð er framkvæmd, ath að ekki er sjálfgefið að um slíkt sé að ræða í öllum tilvikum.
-
Niðurstaða um bótaskyldu og samþykki tryggingarfélags tjónvalds fyrir viðgerðaráætlun verkstæðissins þarf að liggja fyrir áður en viðgerð er framkvæmd.
Leit
Mynd















