Um Cabas
Consulting AB er ráðgjafafyrirtæki með höfuðstöðvar í sænska bænum Örebro og eru þeirra helstu viðskiptavinir tryggingarfélög ásamt bílaframleiðendum, bílainnflytjendum og bílaverkstæðum, í dag starfrækir Consulting einnig greiningar og mælingadeild í náinni samvinnu við ýmsa bílaframleiðendur, eru til dæmis með 20 manna starfslið í Þýskalandi.
Consulting AB hefur verið starfrækt frá árinu 1970 en árið 1975 hóst vinna við MYSBY tímarannsóknarkerfið, í því kerfi eru tekin fyrir atriði er varða réttingarvinnu, svo sem mæliréttingu, yfirborðsréttingu, skeytingu, suðu og varahlutaskipti.
Á síðari stigum var svo bætt inn í kerfið útreikningum er varðaði málningu er byggði á efnisnotkun, vinnu og stærðar útreikningum flata er málaðir voru.
Með stöðugum rannsóknum er WinCABAS kerfið uppfært í samræmi við þróun bíla.
Tilraunaverkstæði voru rekin áður fyrr af sænskum tryggingarfélögum. Öll stunduðu þau viðgerðir á tjónabílum með markmiði að koma bílunum í upprunalegt horf.
Á þessum verkstæðum og með tímamælingum á vinnu við óskemmda bíla voru gerðar vinnutímarannsóknir sem voru nákvæmlega skráðar allt frá því að bíllinn kom á verkstæðið til verkloka og afhendingar ökutækis til viðskiptavinar. Eftir þetta hafa þúsundir viðgerða verið mældar og ekki aðeins í Svíþjóð heldur í allri Evrópu til að þróa gagnagrunninn og um leið stemma af og rétta eldri tímamælingar.
Árið 1986 hófst þróun CABAS tjónamatskerfisins. Hugmyndin var sú að með MYSBY sem undirstöðu væri hægt að búa til gagnagrunn sem héldi utan um upplýsingar sem kallaðar eru fram vegna hverrar viðgerðar og spannar alla þætti sem við eiga og taka þarf tillit til í viðgerðarvinnunni, einnig að koma í veg fyrir tvíverknað sem felst meðal annars í því að kerfið heldur utan um verkferla sem fyrirbyggja tvíverknað.
Í stað þess að nota númerakerfi til að skilgreina aðgerðir voru settar saman upplýsingar um allar aðgerðir sem tilheyra vinnu við hvern verkþátt og varahlut. Þegar ákveðið er að velja tiltekinn varahlut fylgir sjálfvirkt með upplýsingar um viðgerðartímann.
Til að tryggja betur gæði kerfisins var bætt við upplýsingum um réttingu, mælirétting (bekkvinna) og sjálfvirkar upplýsingar um málun og ryðvörn.
Á árinu 2008 hefur verið unnið að þróun miðlægs Cabas kerfis þar sem íslensk tryggingarfélög og nokkur valin verkstæði hafa unnið í gegnum miðlægan gagnagrunn, sem tryggir auðveldara aðgengi að uppfærslu og vistun kerfissins, stefnt er almennri notkun þessa kerfis hér á landi fyrir lok ársins en almennri markaðssetningu þess á næstu 2 árum.
Rafræn samskipti milli verkstæða og tryggingafélaga með skýrslur og myndir eru í dag einföld og þægileg en verða þróuð nánar á grunni áður nefndra nýjunga.
Bílaframleiðendur um allan heim hafa sýnt CABAS kerfinu áhuga hvað varðar yfirbyggingaviðgerðir ásamt öðrum sviðum viðgerða og eru nokkrir þeirra í mjög nánu samstarfi, nú hefur Consulting einnig keypt stórbílakerfið LB data System, sem þróað hefur verið í náinni samvinnu við VOLVO og SCANIA, gert er ráð fyrir að það kerfi verði keyrt samhliða Cabas kerfinu í miðlæga gagnagrunninum í náinni framtíð.
Leit
Mynd















